Lukkulegur laugardagur

Diskurinn kominn í hús og mikil kátína með það.  Ætlum að selja hann í forsölu núna og gefa hann svo formlega út eftir áramót.  Nennum nefnilega ekki að reyna að keppa við alla stórfiskana um athygli enda óttalegt smásíli… en þú getur sum sé keypt hann á mmusic.is.. Bara mjög sátt nema coverið fór í eitthvað rugl  í framleiðslunni og er ekki alveg eins og við sendum það frá okkur, en það er hvort sem er innihaldið sem skiptir máli!

Þessu bar auðvitað að fagna og fór mín barasta á heljarinnar skrall.  Hófum leika á Basil og Lime, veitingastaðnum, þar sem ég fagnaði með graskers ravioli mmm æðislega gott.  Næsta stopp Var Rosenberg og jólatónleikar Hrauns, mikil skemmtun og vel lukkaðir tónleikar.  Mikið af skemmtilegu fólki, sem er alltaf kostur, þá sjaldan að maður bregður sér af bæ.   Norðanmaðurinn Guðni Bragason hafði samband og bauð okkur að hlýða á bassaleik ásamt hljómsveitinni Von á Players.  Ég gerðist svo fræg að fara í fyrsta skipti inn á þann stað eftir miðnætti.  Þegar þarna var komið við sögu vorum við þrjú á ferð, ég, Matti og Magga.  Reyndi að sannfæra norðanmanninn um að ég fengi að taka “Lick it up” (Kiss) með bandinu.  Það tókst ekki (sem betur fer), þótti líklega full groddalegt.  Veit ekki afhverju, en alltaf dettur mér þetta lag í hug til að syngja á góðum stundum, meira að segja á virðulegum árshátíðum þá kemur mér alltaf til hugar að þetta lag sé “málið”!  Rosalega hafa strákarnir alið mig vel nú eða illa upp hér í denn.  Jæja, heim í háttinn um 2.30 og þarf að súpa seiðið af gleðskap gærdagsins í dag. 

Annars bara stuð og stemning og svona líka kát!

Knús, Áslaug


7 desember 2004

Ákveðið var að sprengja belginn enda barnið búið að láta bíða eftir sér í eina og hálfa viku.  Nóvemberbarnið ætlaði augljóslega að vera jólabarn.  Þrátt fyrir þá tilraun gerðist ekkert fram yfir hádegið.  Þá var ákveðið að gefa mömmunni dripp í æð og gangsetja þar með kellu.  Já, já þetta var nú eitthvað nýtt, því einu og hálfu ári fyrr hafði sömu konu verið rúllað inn á skurðstofu þar sem tvíburi A og tvíburi B komu í heiminn.  Konan var því eiginlega fullkomlega sannfærð að þetta barn færi aldrei sömuleið út og það kom inn, heldur færi að fordæmi tvíburanna og lítill keisari eða keisaraynja mætti á svæðið.  Konan kinkaði þó kolli og þóttist ætla að fæða barnið.  Eftir því sem leið á daginn urðu verkirnir verri og verri.  Gas og nálastungur, en mænudeyfing skyldi það ekki vera.  Þegar tvíburarnir fæddust fékk sama kona nefnilega mænudeyfingu og í kjölfar hennar svokallaðan “Spinal hausverk”, sem ég held ég geti fullyrt að sé næstum því það líkamlega versta sem ég hef lent í.   Nei og nei engin mænudeyfing!  En svo varð þetta alltaf verra og verra og verra að endingu sagði Matti “ertu alveg viss um að þú viljir ekki mænudeyfingu?”  Mín gafst upp, þó ekki væri nema smá break frá þessum óbærilega sársauka (enda má maður alveg skipta um skoðun).  Eftir að hafa fengið mænudeyfingu frá sérfræðingi í þetta sinn, sem lesinn var pistillinn áður en hann kom fyrir risanálinni í mænunni á mér, tók við hið ljúfa líf.  Nú leið hver klukkutíminn á fætur öðrum og um 20.30 að kvöldi 7 desember 2004 tókst konunni að fæða þennan nýja þjóðfélagsþegn.  Með naflastrenginn þrívafinn um hálsinn kom barnið í heiminn og þú veist ekki hversu hissa þessi mamma var þegar hún sá karlmennskutáknin milli fótanna á unganum, því svo sannfærð hafði hún verið að lítil prinsessa myndi mæta á svæðið. 2730 grömm og 52 centimetrar, lítill og svo fallegur!  Þessari mömmu hefði aldrei órað fyrir á þessari stundu, þeim ævintýrum sem við ætluðum að fara saman út í.  Nei þetta var barnið sem átti að vera auðvelda dæmið, liggja, drekka  og sofa, gat varla verið mikið mál miðað við tvíbura! 

Í dag er stubbur 4 ára og mikil gleði, búinn að fá nokkra pakka og bíður spenntur eftir afmæliveislu dagsins.  Já, manni finnst maður sko orðinn svo stór.  Ég heyrði hann segja áðan við sistkyni sín “Ef ég er leiðinlegur í dag, þá má ég samt vera með”! – Auðvitað, enda á maður afmæli, svo um að gera að stjórna svolítið sistkynunum og nýta sér það að maður eigi afmæli.

Knús og kveðja, Áslaug  


Nýtt lag í spilaranum

Ský á himni, þriðja lagið á disknum er samið í janúar 2008.  Þetta  er eina lagið af lögunum 8, þar sem textinn er saminn á undan laginu.  “Sunnudagur klukkan 7 að morgni, Matthías minn alveg hundveikur og liggur uppi í sófa.  Ég stelst út í hurð að fá mér sígó og byrja að hripa niður, klukkan 7.15 er fæddur “þessi” texti”.  Í heila viku spáði ég ekkert meira í þessi orð í bókinni minni, en á sunnudegi vikuna á eftir kemur þetta lag.  Þetta er eitt af mínum uppáhalds lögum á disknum (ef maður má segja svoleiðis).  Textinn auðvitað brjálæðislega persónulegur en á sama tíma ekki, því orðin og tilfinningin tilheyra svo mörgum sem ég þekki og ekki þekki.  Lagið fékk aldrei neitt nafn, svo vinnuheitið, fyrstu orðin í textanum fengu bara að standa. 

Ég er svo heppin að þekkja svo mikið af hæfileikaríku fólki sem nennir að leika við mig.  Þeir sem komu út að leika í þessu lagi eru:

Matti sax á píanó, Þröstur Jóhannsson á gítar og  Jón Geir Jóhannsson á trommur (þeir eru samt ekki bræður), Ingólfur Magnússon á bassa, Stefán H. Henrýsson á Hammond (drottninguna sjálfa), Svavar Knútur Kristinsson og Aðalheiður Ólafsdóttir í bakröddum.

Alltaf doldið spes að leyfa einhverjum að heyra í fyrsta sinn.. pínu feimin en læt vaða!

Svo til að hafa þetta svolítið létt og skemmtilegt, þá fylgir gáta: Tilvitnun í hvaða bók kemur fram í textanum? (og þá neyðistu til að hlusta á allan textann)

Knús, Áslaug


Tíminn líður trúðu mér

Jæja, jæja kannski ég láti vita af mér.  Ef þú ert spá hvort ég sé farin úr landi, þá er það ekki svo.  Fór reyndar til Madrit, Madrit skemmtileg borg og voða, voða gaman.  Vildi reyndar svo óheppilega til að innflutta barnfóstran mín lenti á spítala strax eftir heimkomuna frá Madrit.  Eigum við ekki að segja að heil helgi með skæruliðunum mínum hafi lagt hana af velli.  Annars þá er hún elsku systir mín orðin ról fær og farin aftur til síns heima í Danmörkunni. 

Diskurinn minn er tilbúinn!  Jibbí!  Fer í framleiðslu eftir helgina og verður vonandi orðinn margfaldur innan skamms.  Búið að velta þessu fram og til baka hvort eigi að gefa hann út fyrir jólin.  Held að lendingin sé að hann verði í forsölu fyrir jólin og gefinn út á nýju ári með tilheyrandi látum.  Set nýtt lag inn fljótlega. 

Mikið rætt um „óvissuna“ í samfélaginu, get skilið að hún fari illa með fólk.  Sjálf hef ég ekkert vitað í 4 ár og segi: „það er vont en það venst“.  Aðlögunarhæfni mannsins er nefnilega með ólíkindum.

Annars allir hressir og í stuði á sunnudagsmorgni,  „mamma pússa gleraugun mín“, „mamma náðu í djús“, „mamma!“, „mamma!“ – Þjónustustúlkan er að spá í að eiga góðan dag og jafnvel jólast smá svona! 

Knús til þín frá mér, kveðja Áslaug


Það er nú svo...

Já, já, já, já frúin aftur á faraldsfæti á næstunni og meira að segja svo flott á því að hún flytur inn barnfóstru fyrir tvíburana alla leiðina frá Danaveldi (Anna systir á leið til landsins).  Madrit er það heillin og sökum þess að hér er allt á hausnum (nema frúin, greinilega), að þá verður mannskapurinn ferjaður með tékkneskri flugvél (já flughrædda frúin telur að það muni kosta minnst einn fjórfaldan, svo báðir fætur fari inn í vélina). 

Hörðustu Sjálfstæðismenn farnir að efast um Sjálfstæðisflokkinn????  Tja, þetta er nú saga til næsta bæjar enda flokkshollara fólk vart að finna.  Ef efasemda raddirnar koma úr röðum þeirra sjálfra nú….

Annars bara frúin kát og svona, allir hressir og í miklu stuði!

Eigðu góðan sunnudag elskan og gerðu eitthvað skemmtilegt,

Ofurknús og kveðja, þín Áslaug  

 


svona er nú það

Oh þessar elskur, voru í baði fyrir hálftíma síðan.  Sitja svo æðislega góð inni í herbergi og lita.. mamman nýtir gæða stundina til að horfa á fréttir á meðan.  Eeeen viti menn, koma ekki knoll og tott fram (H.A og M.D) búin að lita sig svona æðislega fínt í framan með tússlitunum..."sjáðu mamma, við erum alveg eins og kisur"... tja ég verð nú að viðurkenna að mamman var ekkert allt of kát með þessa nýju húsketti! ... og hafist handa við að þurrka listaverkin úr andlitunum... samt auðvitað óttaleg krútt, en mamman var nú ekkert að segja þeim það samt!

Já fréttatíminn, sama, sama sagan og hver bendir á annan.. mætti halda að þetta lið hefði borðað trúða! - þetta er auðvitað bara djók, er það ekki, ha? Landsmenn löngu hættir að átta sig á hvort nokkur sé að segja satt... en svo vöknum við öll vonandi fljótlega og 1. apríl búinn!

Knús og kveðja, Áslaug 


mmmmmm...

Hef svo sem frá engu að segja en segi samt..

Fór á geggjaðan nýjan Ítalskan veitingastað í gærkvöldi “Basil og Lime”, þar sem Pasta Basta var eitt sinn til húsa.  Skemmst frá því að segja að þetta er nýi uppáhalds veitingastaðurinn minn!  Mig langaði í allt á matseðlinum, en valdi af kostgæfni “humar tagliatelli”, alveg rosalegt.  Allt pasta á staðnum er handgert og ég held þetta sé besta tagliatelli sem ég hef smakkað.  5 stjörnur af 5 mögulegum.  Mæli með þessum stað ef þér vantar að eyða verðlausu krónunum þínum.

Skrítið, en ég hef alltaf verið mikill Íslendingur í mér, nei það er sko ekkert skrítið, en það sem er skrítið er að minnst einu sinni á dag poppar upp hugsunin hjá mér hvort maður ætti að flytja úr landi.  Ætla samt ekkert að flytja úr landi en hugmyndin doldið heillandi, já skrítið!

 Jæja, áður en ég verð meira skrítin, þá sendi ég á þig stórt knús

Bestu kveðjur, þessi skrítna 


Í leikskóla er gaman..

Jæja að öðru en kreppu smeppu..

Matthías byrjaður að mæta í fiðlutíma og svona líka duglegur litla krúttið, verður líklegast fljótur að taka fram úr mömmu sinni í fiðluleik. Kannski stundum smá gítartaktar á fiðluna eeeen allt á réttri leið!

Fórum saman ég og stráksi að sækja tvibbana í leikskólann og hittum þá umsjónarkonuna hans Matthíasar í leikskólanum, sem dró okkur, mömmuna og Matthías, afsíðis til að ræða ákveðið atvik, sem gerst hafði fyrr um daginn.  Matthías minn var sum sé staðinn að verki við að pissa ofan í ruslfötu inni á klósetti og þegar hann heyrði rödd umsjónarkonu sinnar “Matthías, hvað ertu að gera?”  þá brá honum svo mikið að hann snéri sér við og bunan gekk bara yfir baðherbergið! – Enda drengsi fullkomlega meðvitaður um að maður á ekki að pissa ofan í ruslafötur.  Mamman ræddi þetta að sjálfsögðu á alvarlegum nótum við ungann sinn, en langaði þó mest til að hlæja að þessu absúrd uppátæki - en það var auðvitað bannað. 

Knús, knús, kveðja Áslaug 


Verði ekki allir að tjá sig

Kreppa smeppa!  Hvað á maður að segja, ekkert annað svo sem í gangi.  Allar umræður snúa að „kreppunni“.  Hver var ekki stoltur af því að vera Íslendingur, vera frá eyjunni þar sem allt var í svoddan blússandi blóma.  Nú er djammið búið, allt áfengið búið í veislunni og reynt að finna sökudólgana.  Háværar raddir hljóma.. „Grýtum þá sem störtuðu partýinu og skilja svo húsið eftir í rúst“...en mættum við ekki allflest í partýið, þó við hefðum fæst fengið inngöngu í v.i.p herbergið?   Þannig að verðum við ekki bara að sameinast um að taka til eftir veisluna, drekka ódýrt heimabrugg í nokkur ár eða þangað til kampavínið fer að flæða aftur... enda svo sem ekkert annað í boði og þá vonandi að hafa lært eitthvað af reynslunni.

Ég er nú líklega ekki sú snjallasta til að tjá mig um kreppumál, segi þó að í fyrsta sinn í morgun tók hjartað í mér verulegan kypp, þegar ég las í Fréttablaðinu  „þriggja mánaða lyfjabirgðir í landinu“!  Ótrúlega furðuleg tilfinning að á einni viku hefur tilfinningin um að búa í ameríkanseraða Íslandi snúist í að fíla sig sem hluta af löndum, sem efnalega hafa nú ekki þótt sérlega fínn pappír hjá okkur Íslendingum.  Í sjálfhverfu minni var þetta fyrirsögnin sem kveikti í mér.

Getum þó huggað okkur við að „allt tekur enda, hvernig sem það endar“.  Get ekki gefið þér neinn pening, en býð upp á lag úr spilaranum „Lögmálið“!

Knús, Áslaug... sem er alveg viss um „að þetta reddast“...“e haggi?“


Kíkt í heimsókn...

Sunnudagskvöld, kl. 20:00,  uppgötvun er gerð að komið sé gat á ytra hulstur leggsins.  Átta og hálfur mánuður, metið að einn leggur haldist, er slegið!  Mamman hringir í Helgu frænku, Helga frænka í doksann, doksinn í skurðlækninn,  Matthías á að mæta í leggskiptingu á mánudegi kl. 10:00.  Mánudagur, Matthías mætir á Bráðamóttöku.  Einhverjar hugmyndir á lofti um að finna “repairkit” til að nota á legginn.  Mamman og frænkan ekki alveg að kaupa það, enda enn í fersku mynni þegar leggurinn var límdur saman með tonnataki og blóðbaðið mikla átti sér stað um hvítasunnuhelgina 2007.  Mamman var líka nokkuð með það á hreinu að repairkittið hafði aldrei verið notað á legg hér á Íslandi og Matthías yrði ekki fyrstur!  “Repairkittið” fannst ekki, pöntunin hafði aldrei skilað sér, svo aðeins eitt í boði, nýr leggur.  Um kl. 14 var Matthías kominn með nýjan legg.  Innan við sólarhring eftir að gatið uppgötvaðist… þetta kalla ég þjónustu!

Matthías sjálfur bar sig ákaflega mannalega, hlýddi í einu og öllu, enda vanur maður á ferð (8 eða 9 leggur).  Það var ekki fyrr en hann var að rúlla inn á svæfinguna að mamman sá tárin fara að trilla niður kinnarnar á Matthíasi.  Litli snúllinn minn!  Þegar búið var að gefa svæfingarlyfin, þá var prinsinn næstum því útsleginn, en náði þó að segja “Mamma! HJÁLP!”.. Mömmunni langaði auðvitað mest að stinga af með strákinn sinn, skynsemin sagði þessari mömmu þó að unginn þyrfti að fá nýjan legg, svo ekki gæti hún hlaupið langt áður en hún þyrfti að snúa aftur.  Allt gekk vel.  Á vöknun, vaknar Matthías nokkuð hress, pirrar sig mest yfir því að hann sé ekki í sínum fötum, en honum lofað að um leið og hann sé kominn upp á deild, þá fari hann í “sín” föt og svo var það.  Matthías kominn heim fyrir fjögur, eitur hress, löngum vinnudegi lokið og næringin rann ljúflega í gegnum nýjan legg í nótt.

Hef uppgötvað mátt bloggsins til að muna hluti (já, já, alltaf doldið sein), en sjálf er ég eins og gullfiskur og man ekkert stundinni lengur og ákaflega fróðlegt fyrir svona gullfisk að geta flett upp ýmsum viðburðum sem “gerast” svona í lífinu!

Kveðja og knús, Áslaug gullfiskur

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Aslaug

Höfundur

Áslaug Helga Hálfdánardóttir
Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Tónlistarspilari

1.Happy family - Áslaug Helga
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband