27.1.2009 | 16:03
Flensa ?
Í haust barði ég augum miða sem var hengdur upp á vegg í vinnunni minni. Þetta er svo sem ekkert merkilegur miði, þannig, og er hengdur upp á flestum vinnustöðum og jafnvel auglýstur í blöðum. Hann er reyndar merkilegur að einu leiti, að öllum stendur þetta til boða, þitt er valið. Flensusprauta og þar sem ég er kennari og rek lítinn leikskóla heima hjá mér, þá mætti kannski áætla að ég sé ágætlega útsett fyrir svona óværum.
Ég man að ég horfði á þennan miða í haust og hristi hausinn. Þetta var mér gjörsamlega að kostnaðarlausu, en hristi samt hausinn og hugsaði með mér Neeei, ég fæ aldrei svona flensur! Sem er reyndar að nokkru leiti rétt, hef sloppið með ólíkindum síðustu ár, en þvílíkur hroki í einni kellingu. Stofnarnir (inflúensu) eru reyndar missterkir frá ári til árs, það veit ég og nú sit ég velti því fyrir mér að stofninn í ár hljóti að vera mjög skæður og vondur og líklegast eina ástæðan fyrir því að ungfrú Hraust lagðist í rúmið og liggur þar enn.. nei, EKKERT hrokafull þessi kelling!
Þetta byrjaði allt fyrir rúmri viku með hálsbólgu (nei klára að lesa, ekkert geysp hér, ég er að segja þér og mér leiðist). Á miðvikudeginum vakna ég gjörsamlega raddlaus og þá var fyrsta setningin Ó fokk, þar sem tónleikarnir á Rosenberg voru boðaðir á fimmtudeginum. Ég reyndar kveikti engin ljós við þetta raddleysi, var bara pínu vond við sjálfa mig og skrifaði það á stress. Já þetta var örugglega sálrænt, stressið fór beint í röddina, taldi ég. Á fimmtudaginn sá ég fram á mjög vandræðalega tónleika ef ekkert væri að gert og kom mér í innöndunarstera upp á Borgaspítala, söngvaratrix, sem ég reyndar hafði aldrei prófað fyrr, en sá samt eftir..sko að hafa ekki nýtt mér þetta fyrr. Röddin var alveg 80% eftir þessa meðferð.
Skemmtilegir tónleikar, skemmtilegt fólk að horfa og bara svona hamingja, hamingja.
Föstudagur, laugardagur, sunnudagur, mánudagur, leiðindi, leiðindi, leiðindi, leiðindi, hósti, hósti, hósti, hálsbólga, raddleysi, hiti og Áslaug eigraði um húsið eins og Zombie. Dröslaði mér til heilsugæsludoktors í gær, sem nennti engan veginn að vera vinur minn. Hafði fyrir fram ÆTLAÐ mér að labba út með reseft upp á pensilín, en eitthvað snerist það nú í höndunum á mér og labbaði út 5 mínútum seinna með flensugreiningu, reseft upp á hóstamixtúru og 1000 kallinum fátækari.
Hringdi í bóndann sem fékk engan bóndadag og skipaði honum að kaupa viský. Hann kom heim með 60% Stroh, það er víst til 80% en ekki hér í Ríkinu. Drakk nokkur staup af því og ég lýg því ekki að ég vaknaði mun hressari í morgun. Örugglega eina skiptið sem ég hef og á eftir að vakna hressari eftir áfengisdrykkju heldur en fyrir hana.
Ég segi það svo sem ekki að ég á þónokkuð í land með að kallast við hestaheilsu og kannski ekki alveg jafn hress núna og í morgun. En allavegana farin að dunda mér eitthvað, skrifa lífsreynslu pistil um flensu og svona. Hefur reyndar alltaf þótt svona flensuvæl frekar leiðinlegt allavegana og sér í lagi eftir upplifunina með Matthías og að fylgjast með alvöru hetjum úti í samfélaginu. Já, mín er bara búin að vera eins og vælandi smákrakki og þessi hrokafulla kelling sem lætur nú ekki flensur slá sig út af laginu, var bitin í rassinn af einni slíkri. Kannski ég íhugi málið í haust þegar miðinn verður hengdur upp á vegg. Þá sjáum við hversu fljót hún er að gleyma, kellingin hún ég Flensusprauta, iss!
Kveðja, Áslaug (læt vera með að knúsa þig núna svo þú smitist ekki)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.1.2009 | 10:23
Föstudagur og..
Tröllastelpan skreið út úr hellinum sínum, stóð á fætur og teygði hendurnar hátt upp í loft, nuddaði augun, geyspaði og rumdi jæja, Bara kominn 16. Janúar og búin að sofa af mér tvær vikur af nýju ári. Tröllastelpan tölti af stað og hugsaði með sér eitthvað hlýtur nú að hafa gerst á meðan ég svaf á mínu græna eyra. Tröllastelpan, sem er safnari í eðli sínu, en hún er venjulega afskaplega dugleg að safna upplýsingum dreif sig af stað og að ending staðnæmdist hún fyrir framan hús í Kópavogi.
Lögmálið komið út og eiga eintök að fást til sölu í Skífunni og 12 tónum, eins bendi ég á tonlist.is, en þar er diskurinn á forsíðunni, undir nýtt efni og hægt að kaupa eitt og eitt lag, sem og að heyra brot úr lögunum. Endilega tékka á því! Eins er heimasíðan mmusic.is einföld leið til að fá tónlist senda heim að dyrum reyndar ekkert hvaða tónlist sem er en allavegana Lögmálið.
Tónleikar á fimmtudag 22 janúar á Rosenberg (Klapparstíg), hlakka mikið til og verður mikið gaman. Leikar hefjast um klukkan 21:00. Ætlum að spila lögin af disknum sem og annað efni, má þar nefna þjóðlega ameríska svarta sálma, sem eru í miklu uppáhaldi hjá minni þetta misserið. Formlegir útgáfutónleikar verða svo síðar, þar sem meiru verður tjaldað til af auka mönnum og konum til ýmissa gjörninga. Í þetta sinn ræður einfaldleikinn ríkjum Matti sax á sax og hljóðgerfla, Þröstur á gítar, Jón Geir á trommusett, Ingó bassi á bassaling, Stebbi á Hammond og Áslaug gaular og gaular nema kannski ef að einhverjir fá að taka sóló, þá þegir kellingin. Endilega koddu, þetta verður skemmtilegt!
Tröllastelpan sem var enn hálf þreytt eitthvað enda úr allt of mörgum klukkutímum til að spila, endalaust myrkur og eiginlega bara sirka 4 klukkutímar sem hún þurfti að leita skjóls svo hún yrði ekki að steini. Hvurslags er þetta, hvað voru þessir gaurar að spá að setjast að á eyju einhversstaðar út á ballarhafi. Það hefur örugglega verið júní þegar þessi fáránlega ákvörðun var tekin. Svo urðu þeir ótrúlega hissa þegar kindurnar duttu niður dauðar úr hor þegar líða tók á veturinn og ís lagði allt í kringum landið. Nei, kannski ekkert sérlega viturlegt, en voru þetta hvort sem er ekki bara einhverjir krimmar sem flúðu lengst út á haf og kannski ágætur staður til að láta lítið á sér kræla þ.e. þangað til mörgum öldum seinna að mönnum fer að kyppa í kynið enda ætli krimmahátturinn liggi bara ekki í genunum. Eyjan þar sem ekki þykir neitt tiltökumál að græðgi og spilling ráði ríkjum. Æjæjæj nú var tröllastelpan farin að hugsa allt of mikið. Örþreytt skreið hún aftur inn í hellinn sinn og lagðist til hvílu.
Áslaug sendir þér þó bestu kveðjur og segist ekki vera búin að tapa vitglórunni eins og sagði í laginu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2008 | 09:31
Takk fyrir það gamla..
Síðasti dagur ársins. Nýtt ár í vændum, alltaf spennandi, smá tilhlökkun og pínu hnútur. Nýtt ár, sem ber með sér ný og jafnvel óvænt ævintýri.....
Eigðu góðan dag og munum að njóta augnabliksins
kveðja, Áslaug
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.12.2008 | 12:45
Held ég sé að springa..
Já Gleðileg jól! Svo sannarlega gleðileg, fékk æðislegar jólagjafir sem ég ætla ekki að tíunda hér. Ein efnislega gjöfin var þó öðrum fremri en kostaði þó minnstan peninginn en helling af tíma og þolinmæði. Þarf væntanlega ekki að segja að langbesta gjöfin var að við fjölskyldan gátum verið saman hress og kát (og jafnvel pínulítið hlaupandi í hringi, sumir að minnsta kosti).
Húsið er eins og eftir sprengjuárás, dót út um allt. Pakkamaraþon aðfangadagsins tók enda ekki nema um 3 klukkutíma með stuttri pásu. Mömmunni hreinlega fallast hendur og lætur sem hún sjái ekki draslið. Kannski á morgun hugsar hún og sest aftur í stólinn með bókina sína. Er að lesa sögu Magneu sem Sigmundur Ernir skrifaði, svo átakanleg, vel skrifuð og ótrúlega sorgleg en mögnuð sönn saga. Mamman situr grátandi í stólnum og sest niður við hvert tækifæri til að lesa á milli þess sem hún þjónustar ungana sína.
Borða, borða og borða og í dag meira að borða
Hafðu það nú gott á annan dag jóla, kveðja, Áslaug
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.12.2008 | 18:30
Frá mér til þín
Ég óska þér gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ég vona að þú munir hafa það sem allra best yfir hátíðarnar. Ég bið þess að þú munir njóta þessa tíma með gleði og frið í hjartanu. Að ending sendi ég þér kærleiksknús.
Kær jólakveðja, Áslaug
Ps. Setti jólalagið mitt síðan í fyrra í spilarann enda þetta rétti árstíminn fyrir það!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.12.2008 | 09:57
Allt er breytingum háð
Dagurinn sem breytti lífi mínu, eftir þennan dag varð aldrei neitt eins. Já, ég er að tala um 21. desember, nánar tiltekið 21. desember árið 2004. Eftir þennan dag breyttist heimssýnin mín og verður aldrei söm aftur. Ég sagði þér frá þessum degi fyrir ári síðan og ég ætla svo sem ekkert að endursegja þá sögu. Það skrítna er að þessi dagur ásækir mig og þegar desember mánuður hefst, þá fer ég að bíða eftir þessum degi. Ég bíð og á mér bara eina ósk, ósk um að allt verði í lagi.
Þetta er dagurinn sem mér var hent inn í frumskóginn, heim sem ég hafði aldrei kynnst. Ekki það að auðvitað hafði ég heyrt sögur, bróðir minn læknir og báðar systur mínar hjúkrunarfræðingar, meira að segja barnahjúkkur. Já, ég hafði heyrt margar sögur, en raunveruleikinn er stundum bara allt öðruvísi en sögurnar sem maður heyrir. Barnaspítali Hringsins, sem hefur verið svo stór hluti af lífinu síðan þennan dag.
Ég velti því fyrir mér í morgun, af því að stundum hættir maður að velta stanslaust fyrir sér hlutunum og lærir að lifa með. Já, ég velti því fyrir mér í morgun, að ég hefði aldrei trúað því þennan dag fyrir fjórum árum síðan, að ég vissi nákvæmlega jafn mikið eða heldur jafn lítið, fjórum árum seinna hvað sé að barninu. Nei, ég hefði sko aldrei trúað því. Ég hef reyndar bætt alveg helling við mig í læknisfræðum. Ég þekki orðið alveg rosalega mikið af sjúkdómum, hvernig þeir sýna sig og meðferðarúrræði. Orðin vel fær í blóðprufulestri, túlkun og hvað skal gera. Auðvitað er meltingarsystemið stór áhugamál ásamt frændum og frænkum, lifur, brisi, galli og milta. En þrátt fyrir ýmsa vitneskju þá er ég á sama stað og í upphafi.
Tíminn, já tíminn virðist ætla að vera vinur minn, tek þó ekki sterkar til orða en virðist, því í þessum bransa bíður maður alltaf ómeðvitað eftir bakslaginu. En sem stendur virðist tíminn ætla að vera vinur minn.
Hann er svo flottur strákur, skemmtilegur og klár. Auðvitað alveg svakaleg frekjudós eða eigum við að segja ákveðinn ungur maður. En það er sko allt í lagi, því tíminn virðist ætla að vera vinur minn.
Þrátt fyrir næringu í æð, þá er Matthías minn mikill áhugamaður um mat. Hann er td. alltaf að tékka hvað sé til í ískápnum, er mikill áhugamaður um búðarferðir og hvað sé keypt. Er auðvitað pínu spes í matarvali miðað við 4 ára td. stelur hann öllum ólívum og sveppum af pitzunni, hvítlauksbrauð með pestó og um daginn var nýjasta hittið, paprika með gommu af smjöri. Ástæðan er líklegast (því ekkert veit maður svo sem fyrir víst) að hann nýtir ekki fituna og sækist þar af leiðandi í allt sem er feitt. Honum þætti td. frábært ef hann fengi smjörklump og myndi pottþétt fá sér nokkra bita, ef hann fengi leyfi til.
Já í dag er ég pínu væmin, en ég veit alveg afhverju, ég er væmin af því að það er 21. desember.
Knús og kveðja, Áslaug væmna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.12.2008 | 18:12
"..bráðum koma jólin"
Salan á disknum mínum fer vel af stað, sem er frábært sérstaklega þar sem hann hefur einungis verið auglýstur hér á blogginu og feisbúkkinu. Enda verður hann ekki formlega útgefinn fyrr en 1. Janúar. Mín afskaplega þakklát enda mun allur ágóðinn renna til félags Einstakra barna, sem eru börn með sjaldgæfa alvarlega sjúkdóma.
Ég átti nú eftir að segja þér frá því að allir spilararnir á disknum gáfu vinnu sína, enginn fékk 1 krónu fyrir, miklir snillingar á ferð og þeim fannst nú ekki mikið mál að koma og eyða tíma og orku í hana mig og leggja góðu málefni lið í leiðinni. Matti, Þröstur, Jón Geir, Ingó, Stebbi, Svavar, Heiða og Þráinn, Margir kossar og knús til ykkar. Ekki sjálfgefið að eiga svona vini! Endilega tékka á heimasíðunni mmusic.is það er ef þú hefur ekki gert það þegar.
Stórfjölskyldan mætti á fyrsta fiðlukonsertinn hjá stubb, sem gengu svona glimrandi vel. Afskaplega einbeittur ungur maður hann Matthías minn og spilaði Klukknahljóm, Nú er Gunna á nýju skónum og Kópavogur hopp stopp fyrir familíuna á E - streng ásamt hóp af öðrum Suzuki krökkum. Stórfjölskyldan sat auðvitað agndofa yfir snilli pilts. Þegar er hafin leit að Stradivarius á E-bay (nei, bara djók).
Annars bara 6 dagar í jól og á eftir að gera alveg helling hún kelling-in ég!
Knús og kveðja ÁslaugBloggar | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Aslaug
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- sax
- metal
- thoragudmanns
- sibbulina
- ragnaremil
- fjolan
- benjonikla
- siggav
- ingvarvalgeirs
- peturorn
- nesirokk
- saxi
- ktomm
- gudnim
- jakobsmagg
- ivg
- swiss
- millarnir
- fjola
- hjolaferd
- smarijokull
- kristmundsdottir
- joningvar
- hogmogskhihollandi
- judas
- hallurg
- bless
- josi
- hofi
- gunnarfreyr
- ingo
- olafurfa
- saethorhelgi
- steinibriem
- charliekart
- gunnarpalsson
- gossipp
- handtoskuserian
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar