27.1.2009 | 16:03
Flensa ?
Í haust barði ég augum miða sem var hengdur upp á vegg í vinnunni minni. Þetta er svo sem ekkert merkilegur miði, þannig, og er hengdur upp á flestum vinnustöðum og jafnvel auglýstur í blöðum. Hann er reyndar merkilegur að einu leiti, að öllum stendur þetta til boða, þitt er valið. Flensusprauta og þar sem ég er kennari og rek lítinn leikskóla heima hjá mér, þá mætti kannski áætla að ég sé ágætlega útsett fyrir svona óværum.
Ég man að ég horfði á þennan miða í haust og hristi hausinn. Þetta var mér gjörsamlega að kostnaðarlausu, en hristi samt hausinn og hugsaði með mér Neeei, ég fæ aldrei svona flensur! Sem er reyndar að nokkru leiti rétt, hef sloppið með ólíkindum síðustu ár, en þvílíkur hroki í einni kellingu. Stofnarnir (inflúensu) eru reyndar missterkir frá ári til árs, það veit ég og nú sit ég velti því fyrir mér að stofninn í ár hljóti að vera mjög skæður og vondur og líklegast eina ástæðan fyrir því að ungfrú Hraust lagðist í rúmið og liggur þar enn.. nei, EKKERT hrokafull þessi kelling!
Þetta byrjaði allt fyrir rúmri viku með hálsbólgu (nei klára að lesa, ekkert geysp hér, ég er að segja þér og mér leiðist). Á miðvikudeginum vakna ég gjörsamlega raddlaus og þá var fyrsta setningin Ó fokk, þar sem tónleikarnir á Rosenberg voru boðaðir á fimmtudeginum. Ég reyndar kveikti engin ljós við þetta raddleysi, var bara pínu vond við sjálfa mig og skrifaði það á stress. Já þetta var örugglega sálrænt, stressið fór beint í röddina, taldi ég. Á fimmtudaginn sá ég fram á mjög vandræðalega tónleika ef ekkert væri að gert og kom mér í innöndunarstera upp á Borgaspítala, söngvaratrix, sem ég reyndar hafði aldrei prófað fyrr, en sá samt eftir..sko að hafa ekki nýtt mér þetta fyrr. Röddin var alveg 80% eftir þessa meðferð.
Skemmtilegir tónleikar, skemmtilegt fólk að horfa og bara svona hamingja, hamingja.
Föstudagur, laugardagur, sunnudagur, mánudagur, leiðindi, leiðindi, leiðindi, leiðindi, hósti, hósti, hósti, hálsbólga, raddleysi, hiti og Áslaug eigraði um húsið eins og Zombie. Dröslaði mér til heilsugæsludoktors í gær, sem nennti engan veginn að vera vinur minn. Hafði fyrir fram ÆTLAÐ mér að labba út með reseft upp á pensilín, en eitthvað snerist það nú í höndunum á mér og labbaði út 5 mínútum seinna með flensugreiningu, reseft upp á hóstamixtúru og 1000 kallinum fátækari.
Hringdi í bóndann sem fékk engan bóndadag og skipaði honum að kaupa viský. Hann kom heim með 60% Stroh, það er víst til 80% en ekki hér í Ríkinu. Drakk nokkur staup af því og ég lýg því ekki að ég vaknaði mun hressari í morgun. Örugglega eina skiptið sem ég hef og á eftir að vakna hressari eftir áfengisdrykkju heldur en fyrir hana.
Ég segi það svo sem ekki að ég á þónokkuð í land með að kallast við hestaheilsu og kannski ekki alveg jafn hress núna og í morgun. En allavegana farin að dunda mér eitthvað, skrifa lífsreynslu pistil um flensu og svona. Hefur reyndar alltaf þótt svona flensuvæl frekar leiðinlegt allavegana og sér í lagi eftir upplifunina með Matthías og að fylgjast með alvöru hetjum úti í samfélaginu. Já, mín er bara búin að vera eins og vælandi smákrakki og þessi hrokafulla kelling sem lætur nú ekki flensur slá sig út af laginu, var bitin í rassinn af einni slíkri. Kannski ég íhugi málið í haust þegar miðinn verður hengdur upp á vegg. Þá sjáum við hversu fljót hún er að gleyma, kellingin hún ég Flensusprauta, iss!
Kveðja, Áslaug (læt vera með að knúsa þig núna svo þú smitist ekki)
Um bloggið
Aslaug
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- sax
- metal
- thoragudmanns
- sibbulina
- ragnaremil
- fjolan
- benjonikla
- siggav
- ingvarvalgeirs
- peturorn
- nesirokk
- saxi
- ktomm
- gudnim
- jakobsmagg
- ivg
- swiss
- millarnir
- fjola
- hjolaferd
- smarijokull
- kristmundsdottir
- joningvar
- hogmogskhihollandi
- judas
- hallurg
- bless
- josi
- hofi
- gunnarfreyr
- ingo
- olafurfa
- saethorhelgi
- steinibriem
- charliekart
- gunnarpalsson
- gossipp
- handtoskuserian
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Aha kíktir og þá máttu ekki gleyma að kvitta elskan .....
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 28.1.2009 kl. 07:07
Ég kvitta og sendi þér baráttukveðjur og vona að þú sért að ná þér
Magga Svanur (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 17:06
Það þarf nú að fara að koma þér út úr húsi elskan
Matti sax, 28.1.2009 kl. 18:23
Maður verður nú eðlilega kannski nett klikk á að hanga lasin heima, núna bráðum í viku! En æji takk Magga mín og Matti minn nú verðurðu að fara að æfa skemmtiatriði handa mér, svo kellingin snappi ekki endanlega (skemmtileg þessi tilfinningatákn)
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 28.1.2009 kl. 19:37
Vona að þú sért að skríða saman. Passaðu þig að enda ekki í lungnabólgu, eins og undirrituð
Berglind (hans Þráins) (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 23:31
Já, ég hreinlega veit það ekki, ekkert skárri í dag en í gær, furðulegt! Ætla samt að vona að ég fari ekki að þínu fordæmi Berglind mín og vona að þú sért batnandi.. Að ein flensa geti slegið mann svona út af laginu er með ólíkindum. Bið að heilsa í kotið
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 29.1.2009 kl. 07:38
Láttu þér nú fara að batna systir mín góð.
Kristín Anna Einarsdóttir (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 20:16
Já, takk fyrir, þetta er orðið ágætt af ómerkilegri flensu. Hefði bara þurft að koma á Caroline Amalievej í ítalskt þema til að láta mér batna knús
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 30.1.2009 kl. 07:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.