Allt er breytingum háð

Dagurinn sem breytti lífi mínu, eftir þennan dag varð aldrei neitt eins.  Já, ég er að tala um 21. desember, nánar tiltekið 21. desember árið 2004.  Eftir þennan dag breyttist heimssýnin mín og verður aldrei söm aftur.  Ég sagði þér frá þessum degi fyrir ári síðan og ég ætla svo sem ekkert að endursegja þá sögu.  Það skrítna er að þessi dagur ásækir mig og þegar desember mánuður hefst, þá fer ég að bíða eftir þessum degi.  Ég bíð og á mér bara eina ósk, ósk um að allt verði í lagi.

Þetta er dagurinn sem mér var hent inn í frumskóginn, heim sem ég hafði aldrei kynnst.  Ekki það að auðvitað hafði ég heyrt sögur, bróðir minn læknir og báðar systur mínar hjúkrunarfræðingar, meira að segja barnahjúkkur.  Já, ég hafði heyrt margar sögur, en raunveruleikinn er stundum bara allt öðruvísi en sögurnar sem maður heyrir.  Barnaspítali Hringsins, sem hefur verið svo stór hluti af lífinu síðan þennan dag. 

Ég velti því fyrir mér í morgun, af því að stundum hættir maður að velta stanslaust fyrir sér hlutunum og lærir að lifa með.  Já, ég velti því fyrir mér í morgun, að ég hefði aldrei trúað því þennan dag fyrir fjórum árum síðan, að ég vissi nákvæmlega jafn mikið eða heldur jafn lítið, fjórum árum seinna hvað sé að barninu.  Nei, ég hefði sko aldrei trúað því.  Ég hef reyndar bætt alveg helling við mig í læknisfræðum.  Ég þekki orðið alveg rosalega mikið af sjúkdómum, hvernig þeir sýna sig og meðferðarúrræði.  Orðin vel fær í blóðprufulestri, túlkun og hvað skal gera.  Auðvitað er meltingarsystemið stór áhugamál ásamt frændum og frænkum, lifur, brisi, galli og milta.  En þrátt fyrir ýmsa vitneskju þá er ég á sama stað og í upphafi.

Tíminn, já tíminn virðist ætla að vera vinur minn, tek þó ekki sterkar til orða en „virðist“, því í þessum bransa bíður maður alltaf ómeðvitað eftir bakslaginu.  En sem stendur virðist tíminn ætla að vera vinur minn. 

Hann er svo flottur strákur, skemmtilegur og klár.  Auðvitað alveg svakaleg frekjudós eða eigum við að segja „ákveðinn ungur maður“.  En það er sko allt í lagi, því tíminn virðist ætla að vera vinur minn. 

Þrátt fyrir næringu í æð, þá er Matthías minn mikill áhugamaður um mat.  Hann er td. alltaf að tékka hvað sé til í ískápnum, er mikill áhugamaður um búðarferðir og hvað sé keypt.  Er auðvitað pínu spes í matarvali miðað við 4 ára td. stelur hann öllum ólívum og sveppum af pitzunni, hvítlauksbrauð með pestó og um daginn var nýjasta hittið, paprika með gommu af smjöri.  Ástæðan er líklegast (því ekkert veit maður svo sem fyrir víst) að hann nýtir ekki fituna og sækist þar af leiðandi í allt sem er feitt.  Honum þætti td. frábært ef hann fengi smjörklump og myndi pottþétt fá sér nokkra bita, ef hann fengi leyfi til.

Já í dag er ég pínu væmin, en ég veit alveg afhverju, ég er væmin af því að það er 21. desember.

Knús og kveðja, Áslaug væmna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þóra Sigurborg Guðmannsdóttir

Elsku Áslaug mín,

Það er rosalega erfið reynsla að vita af barninu sínu svona veiku og engar lausnir finnast. Ég held að engin geti sett sig í ykkar spor nema að hafa lent í slíku. En mikið hugsa ég oft til ykkar og vona að einhver lausn fari að finnast.

Það er líka allt í lagi að vera væmin þegar börnin manns eiga í hlut, og það er ekki að ástæðulausu að þessi dagur sé þér og ykkur minnisstæður.

Hafið það sem allra best yfir jólahátíðina og ég vona að þið getið öll verið saman um jólin og notið þeirra öll saman :0)

Þín vinkona sem saknar þín alveg svakalega mikið

Þóra Sigurborg Guðmannsdóttir, 21.12.2008 kl. 22:20

2 identicon

Fallega skrifað    Vonandi verður tíminn vinur ykkar um langa tíð enn. 

Takk fyrir sönginn í kvöld, börnin mín voru alveg agndofa.

KV.Bryndís

Bryndís (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 23:25

3 Smámynd: Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Elsku Þóra mín, ég sakna þín líka.. kaffibollinn þinn löngu orðinn kaldur, það er svo langt síðan að ég hef séð þig, en ætli ég helli ekki upp á nýjan í sumrinu.  Gleðileg jól elsku vinkona til þín, Péturs og stelpnanna. Risaknús

Takk fyrir Bryndís mín, já við skulum sko vona það að tíminn vinni bara með okkur og verði góður og traustur vinur.  Stórt jólaknús á þig og gengið þitt. ...svo er nú bara yfir eina götu að fara fyrir þig að fá kaffibolla, kannski þú droppir við fljótlega

Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 22.12.2008 kl. 11:30

4 identicon

já. baráttuviljinn minkar ekki með tímanum. Takk f jólakortið og gleðilega hátíð. Við hittumst nú á milli jóla og nýárs, það er skilda.

Kv,

Hjalti, Maja og Sóley Kristín

hgret (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Aslaug

Höfundur

Áslaug Helga Hálfdánardóttir
Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Tónlistarspilari

1.Happy family - Áslaug Helga
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband