7.12.2008 | 09:20
7 desember 2004
Ákveðið var að sprengja belginn enda barnið búið að láta bíða eftir sér í eina og hálfa viku. Nóvemberbarnið ætlaði augljóslega að vera jólabarn. Þrátt fyrir þá tilraun gerðist ekkert fram yfir hádegið. Þá var ákveðið að gefa mömmunni dripp í æð og gangsetja þar með kellu. Já, já þetta var nú eitthvað nýtt, því einu og hálfu ári fyrr hafði sömu konu verið rúllað inn á skurðstofu þar sem tvíburi A og tvíburi B komu í heiminn. Konan var því eiginlega fullkomlega sannfærð að þetta barn færi aldrei sömuleið út og það kom inn, heldur færi að fordæmi tvíburanna og lítill keisari eða keisaraynja mætti á svæðið. Konan kinkaði þó kolli og þóttist ætla að fæða barnið. Eftir því sem leið á daginn urðu verkirnir verri og verri. Gas og nálastungur, en mænudeyfing skyldi það ekki vera. Þegar tvíburarnir fæddust fékk sama kona nefnilega mænudeyfingu og í kjölfar hennar svokallaðan Spinal hausverk, sem ég held ég geti fullyrt að sé næstum því það líkamlega versta sem ég hef lent í. Nei og nei engin mænudeyfing! En svo varð þetta alltaf verra og verra og verra að endingu sagði Matti ertu alveg viss um að þú viljir ekki mænudeyfingu? Mín gafst upp, þó ekki væri nema smá break frá þessum óbærilega sársauka (enda má maður alveg skipta um skoðun). Eftir að hafa fengið mænudeyfingu frá sérfræðingi í þetta sinn, sem lesinn var pistillinn áður en hann kom fyrir risanálinni í mænunni á mér, tók við hið ljúfa líf. Nú leið hver klukkutíminn á fætur öðrum og um 20.30 að kvöldi 7 desember 2004 tókst konunni að fæða þennan nýja þjóðfélagsþegn. Með naflastrenginn þrívafinn um hálsinn kom barnið í heiminn og þú veist ekki hversu hissa þessi mamma var þegar hún sá karlmennskutáknin milli fótanna á unganum, því svo sannfærð hafði hún verið að lítil prinsessa myndi mæta á svæðið. 2730 grömm og 52 centimetrar, lítill og svo fallegur! Þessari mömmu hefði aldrei órað fyrir á þessari stundu, þeim ævintýrum sem við ætluðum að fara saman út í. Nei þetta var barnið sem átti að vera auðvelda dæmið, liggja, drekka og sofa, gat varla verið mikið mál miðað við tvíbura!
Í dag er stubbur 4 ára og mikil gleði, búinn að fá nokkra pakka og bíður spenntur eftir afmæliveislu dagsins. Já, manni finnst maður sko orðinn svo stór. Ég heyrði hann segja áðan við sistkyni sín Ef ég er leiðinlegur í dag, þá má ég samt vera með! Auðvitað, enda á maður afmæli, svo um að gera að stjórna svolítið sistkynunum og nýta sér það að maður eigi afmæli.
Knús og kveðja, Áslaug
Um bloggið
Aslaug
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- sax
- metal
- thoragudmanns
- sibbulina
- ragnaremil
- fjolan
- benjonikla
- siggav
- ingvarvalgeirs
- peturorn
- nesirokk
- saxi
- ktomm
- gudnim
- jakobsmagg
- ivg
- swiss
- millarnir
- fjola
- hjolaferd
- smarijokull
- kristmundsdottir
- joningvar
- hogmogskhihollandi
- judas
- hallurg
- bless
- josi
- hofi
- gunnarfreyr
- ingo
- olafurfa
- saethorhelgi
- steinibriem
- charliekart
- gunnarpalsson
- gossipp
- handtoskuserian
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já Àslaug mín, hverjum hefði órað fyrir því, hvað prinsinn okkar ætti eftir að ganga í gegnum fyrir fjórum árum síðan. Til hamingju med frábæran strák. Sakna þess bara, að vera ekki með í dag. Knúsaðu hann frá mér
Kristin Anna Einarsdóttir (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 11:31
Hæ elsku vinkona til hamingju með strákinn. Þetta er stór hetja sem þú átt. Og hörkuduglegir foreldrar. Knús til ykkar allra. Jóna
Jóna (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 17:42
Innilega til hamingju með kraftaverkið ykkar og gangi ykkur vel.
Fjóla Æ., 7.12.2008 kl. 18:37
Knús á þig elskan.
Sigurbjörg Guðleif, 7.12.2008 kl. 22:06
Takk elskurnar, alveg ótrúlegt hvað tóminn líður hratt!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 8.12.2008 kl. 15:18
"tíminn"
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 8.12.2008 kl. 15:18
Stórt knús til þín og ykkar elskan :)
Heiða Ólafs (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 03:09
Hæ, sæta! Innilega til hamingju með strákinn. Fjögur ár liðin, úff já þetta er ekkert smá fljótt að líða. Þið eruð rosalega samhent og falleg fjölskylda. Kysstu hann frá mér til hamingju með daginn.
Þín vinkona Þóra .
Þóra Sigurborg Guðmannsdóttir, 9.12.2008 kl. 14:58
Rokk!
Þráinn Árni Baldvinsson, 9.12.2008 kl. 18:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.