28.11.2008 | 12:20
Nýtt lag í spilaranum
Ský á himni, þriðja lagið á disknum er samið í janúar 2008. Þetta er eina lagið af lögunum 8, þar sem textinn er saminn á undan laginu. “Sunnudagur klukkan 7 að morgni, Matthías minn alveg hundveikur og liggur uppi í sófa. Ég stelst út í hurð að fá mér sígó og byrja að hripa niður, klukkan 7.15 er fæddur “þessi” texti”. Í heila viku spáði ég ekkert meira í þessi orð í bókinni minni, en á sunnudegi vikuna á eftir kemur þetta lag. Þetta er eitt af mínum uppáhalds lögum á disknum (ef maður má segja svoleiðis). Textinn auðvitað brjálæðislega persónulegur en á sama tíma ekki, því orðin og tilfinningin tilheyra svo mörgum sem ég þekki og ekki þekki. Lagið fékk aldrei neitt nafn, svo vinnuheitið, fyrstu orðin í textanum fengu bara að standa.
Ég er svo heppin að þekkja svo mikið af hæfileikaríku fólki sem nennir að leika við mig. Þeir sem komu út að leika í þessu lagi eru:
Matti sax á píanó, Þröstur Jóhannsson á gítar og Jón Geir Jóhannsson á trommur (þeir eru samt ekki bræður), Ingólfur Magnússon á bassa, Stefán H. Henrýsson á Hammond (drottninguna sjálfa), Svavar Knútur Kristinsson og Aðalheiður Ólafsdóttir í bakröddum.
Alltaf doldið spes að leyfa einhverjum að heyra í fyrsta sinn.. pínu feimin en læt vaða!
Svo til að hafa þetta svolítið létt og skemmtilegt, þá fylgir gáta: Tilvitnun í hvaða bók kemur fram í textanum? (og þá neyðistu til að hlusta á allan textann)
Knús, Áslaug
Um bloggið
Aslaug
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
sax
-
metal
-
thoragudmanns
-
sibbulina
-
ragnaremil
-
fjolan
-
benjonikla
-
siggav
-
ingvarvalgeirs
-
peturorn
-
nesirokk
-
saxi
-
ktomm
-
gudnim
-
jakobsmagg
-
ivg
-
swiss
-
millarnir
-
fjola
-
hjolaferd
-
smarijokull
-
kristmundsdottir
-
joningvar
-
hogmogskhihollandi
-
judas
-
hallurg
-
bless
-
josi
-
hofi
-
gunnarfreyr
-
ingo
-
olafurfa
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
charliekart
-
gunnarpalsson
-
gossipp
-
handtoskuserian
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hmmmm.....það skyldi þó ekki vera Ronja Ræningjadóttir?
En annars finnst mér þetta mjög fínt lag og textinn flottur.
Kv.Bryndís
Bryndís (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 01:50
Mikið rétt Bryndís mín... þessi var erfið er það ekki? Í vinning færðu stórt bros!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 29.11.2008 kl. 07:48
Ég fattaði það um leið og ég heyrði þig syngja um rassálfa:) Lagið er ofboðslega fallegt, ég sat og táraðist yfir fegurðinni:) þú ert algjör snilli. Ég veit þú ert ekki búin að gleyma mér. Það liggur ekkert á:)
Knús á þig góða mín:
Sigurbjörg Guðleif, 30.11.2008 kl. 19:05
Rassálfarnir hafa lengið verið mikið uppáhalds hjá mér! Ætlaði nú ekki að græta þig Sibba mín...en samt pínu góð tilfinning
Knús
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 1.12.2008 kl. 05:44
þetta er mjög flott lag hjá þér. :)
Helga Jóna Kristmundsdóttir, 1.12.2008 kl. 15:50
Takk fyrir Helga Jóna mín, sjáumst í fimleikunum!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 1.12.2008 kl. 18:47
Fyndið, Rassálfarnir voru líka alltaf í mínu uppáhaldi.
Flott lag hjá þér vinkona og textinn fallegur og flott sungið hjá þér. Þú ert algjör hetja! Gangi þér vel með diskinn, svo vil ég fá að kaupa hann hehe. Þú geymir kannski eintak handa mér þangað til að ég kem í sumar, ég vil nefnilega fá hann áritaðan hehe.
Knús og kossar til þín elsku besta vinkona og hafið það sem allra best í sjálfum jólamánuðinum
.
Þóra S. Guðmannsdóttir (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 20:51
Rassálfar og prumpurumpurump - snilld
hgret (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 21:34
Elsku vinkona. Til hamingju. Þú náðir mér. Þetta er mjög fallegt lag. Textinn er æði
Hlakka til að heyra meira. Knús
Jóna (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 22:14
Virkilega flott lag og texti Àslaug mín. Hlakka til ad fá diskinn
knús
Kristin Anna Einarsdóttir (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 11:57
Já, Þóra mín ætli ég muni ekki eiga kannski eitt eintak eftir í vor handa þér vinkona, ætlarðu ekkert að kíkja heim fyrr?
Við getum verið sammála um það Hjalti minn að Ronja Ræningjadóttir er skemmtileg!
Jóna mín, gleður mig og já þú verður sko pínd til að heyra meira
Um leið og dikurinn er kominn verður mitt fyrsta verk að fara á pósthúsið, svo þú fáir hann enn heitan úr framleiðslunni Anna mín!
Knús á ykkur öll!!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 3.12.2008 kl. 10:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.