23.11.2008 | 09:18
Tíminn líður trúðu mér
Jæja, jæja kannski ég láti vita af mér. Ef þú ert spá hvort ég sé farin úr landi, þá er það ekki svo. Fór reyndar til Madrit, Madrit skemmtileg borg og voða, voða gaman. Vildi reyndar svo óheppilega til að innflutta barnfóstran mín lenti á spítala strax eftir heimkomuna frá Madrit. Eigum við ekki að segja að heil helgi með skæruliðunum mínum hafi lagt hana af velli. Annars þá er hún elsku systir mín orðin ról fær og farin aftur til síns heima í Danmörkunni.
Diskurinn minn er tilbúinn! Jibbí! Fer í framleiðslu eftir helgina og verður vonandi orðinn margfaldur innan skamms. Búið að velta þessu fram og til baka hvort eigi að gefa hann út fyrir jólin. Held að lendingin sé að hann verði í forsölu fyrir jólin og gefinn út á nýju ári með tilheyrandi látum. Set nýtt lag inn fljótlega.
Mikið rætt um óvissuna í samfélaginu, get skilið að hún fari illa með fólk. Sjálf hef ég ekkert vitað í 4 ár og segi: það er vont en það venst. Aðlögunarhæfni mannsins er nefnilega með ólíkindum.
Annars allir hressir og í stuði á sunnudagsmorgni, mamma pússa gleraugun mín, mamma náðu í djús, mamma!, mamma! Þjónustustúlkan er að spá í að eiga góðan dag og jafnvel jólast smá svona!
Knús til þín frá mér, kveðja Áslaug
Um bloggið
Aslaug
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- sax
- metal
- thoragudmanns
- sibbulina
- ragnaremil
- fjolan
- benjonikla
- siggav
- ingvarvalgeirs
- peturorn
- nesirokk
- saxi
- ktomm
- gudnim
- jakobsmagg
- ivg
- swiss
- millarnir
- fjola
- hjolaferd
- smarijokull
- kristmundsdottir
- joningvar
- hogmogskhihollandi
- judas
- hallurg
- bless
- josi
- hofi
- gunnarfreyr
- ingo
- olafurfa
- saethorhelgi
- steinibriem
- charliekart
- gunnarpalsson
- gossipp
- handtoskuserian
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju að vera búin með diskinn. Það væri gaman að fá að heyra lögin .
Stórt knús og feitur koss á þína kinn.
Þóra Sigurborg Guðmannsdóttir, 24.11.2008 kl. 20:38
Hæhæ Ég pant kaupa diskinn:) Ég kannast svolítið við þjónustustúlku fílinginn og maður er neú ekki alltaf í stuði til að þeysast um allt:):)
Jóla knús á þig kraftaverka konan mín:) Þú ert mér svo mikilsvirði:)
Sigurbjörg Guðleif, 25.11.2008 kl. 08:12
Já Þóra mín, einn feitur til baka... og Sibba mín sömuleiðis og knús á þig og erum ekki búin að gleyma, bara pínu bissí þessa dagana..en þetta kemur!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 27.11.2008 kl. 15:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.