16.10.2008 | 19:53
Í leikskóla er gaman..
Jæja að öðru en kreppu smeppu..
Matthías byrjaður að mæta í fiðlutíma og svona líka duglegur litla krúttið, verður líklegast fljótur að taka fram úr mömmu sinni í fiðluleik. Kannski stundum smá gítartaktar á fiðluna eeeen allt á réttri leið!
Fórum saman ég og stráksi að sækja tvibbana í leikskólann og hittum þá umsjónarkonuna hans Matthíasar í leikskólanum, sem dró okkur, mömmuna og Matthías, afsíðis til að ræða ákveðið atvik, sem gerst hafði fyrr um daginn. Matthías minn var sum sé staðinn að verki við að pissa ofan í ruslfötu inni á klósetti og þegar hann heyrði rödd umsjónarkonu sinnar Matthías, hvað ertu að gera? þá brá honum svo mikið að hann snéri sér við og bunan gekk bara yfir baðherbergið! Enda drengsi fullkomlega meðvitaður um að maður á ekki að pissa ofan í ruslafötur. Mamman ræddi þetta að sjálfsögðu á alvarlegum nótum við ungann sinn, en langaði þó mest til að hlæja að þessu absúrd uppátæki - en það var auðvitað bannað.
Knús, knús, kveðja Áslaug
Um bloggið
Aslaug
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- sax
- metal
- thoragudmanns
- sibbulina
- ragnaremil
- fjolan
- benjonikla
- siggav
- ingvarvalgeirs
- peturorn
- nesirokk
- saxi
- ktomm
- gudnim
- jakobsmagg
- ivg
- swiss
- millarnir
- fjola
- hjolaferd
- smarijokull
- kristmundsdottir
- joningvar
- hogmogskhihollandi
- judas
- hallurg
- bless
- josi
- hofi
- gunnarfreyr
- ingo
- olafurfa
- saethorhelgi
- steinibriem
- charliekart
- gunnarpalsson
- gossipp
- handtoskuserian
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þakka ykkur kvöldstundina í fögrum hljómum söngs og hljóðfæris.
Guðjón H Finnbogason, 16.10.2008 kl. 20:10
Ha ha ha ha.......
Eg hef'i ekki getað haldið coolinu í þessum aðstæðum
hgret (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 06:26
Hahahahhahahahahha almáttugur:):)
Sigurbjörg Guðleif, 17.10.2008 kl. 12:52
Verð að segja að ég skil þig ofurvel að hafa helst viljað skella uppúr vegna athafna sonarins. En ég verð líka að spyrja um, hélt kennarinn kúlinu? Ég er a.m.k. ekki viss um að ég hefði gert það.
Fjóla Æ., 17.10.2008 kl. 18:38
Sömuleiðis Guðjón minn, þetta verður gaman!
Einmitt Hjalti minn, enda þurfti ég að bíta fast í kinnarnar til að halda brosvöðvunum!
Já, Sibba mín, svona eru þessir strákar..
Já Fjóla mín "reyndum" að vera MJÖG alvarlegar báðar en um leið og Matthías sá ekki til, þá glottum við báðar!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 18.10.2008 kl. 08:50
Ég hef nú lent í ýmsu á leikskólanum mínum en ekki þessu en þetta er einmitt sem gerir dagana svo skemmtilega. Enginn dagur eins. Það hefði verið gaman að hafa gutta hjá mér. Knús á ykkur, það er allt of langt síðan að ég kom hingað
Jóna (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 12:25
Já þeim dettur sko ýmislegt í hug þessum krílum, Jóna mín, risaknús til þín mín kæra!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 21.10.2008 kl. 09:24
Einn bekkjarbróðir minn í 8. eða 9. bekk gerði þetta einu sinni í íslenskutíma þegar kennarinn vildi ekki leyfa honum að fara á klóið, hélt að hann vildi bara losna úr tíma. Gaurinn pissaði bara í ruslafötuna fyrir framan allan bekkinn!! haha Hann var óborganlegur svipurinn á kennaranum
Magga sax (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 19:26
Og samt ákvaðstu að verða kennari Magga mín! Ég ætla samt að vona að Matthías hafi lært sína lexíu varðandi piss og ruslafötur og haldi ekki áfram fram á unglings ár... því þá held ég að mamman væri löngu hætt að hlægja. Knús!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 22.10.2008 kl. 11:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.