7.10.2008 | 09:56
Kíkt í heimsókn...
Sunnudagskvöld, kl. 20:00, uppgötvun er gerð að komið sé gat á ytra hulstur leggsins. Átta og hálfur mánuður, metið að einn leggur haldist, er slegið! Mamman hringir í Helgu frænku, Helga frænka í doksann, doksinn í skurðlækninn, Matthías á að mæta í leggskiptingu á mánudegi kl. 10:00. Mánudagur, Matthías mætir á Bráðamóttöku. Einhverjar hugmyndir á lofti um að finna repairkit til að nota á legginn. Mamman og frænkan ekki alveg að kaupa það, enda enn í fersku mynni þegar leggurinn var límdur saman með tonnataki og blóðbaðið mikla átti sér stað um hvítasunnuhelgina 2007. Mamman var líka nokkuð með það á hreinu að repairkittið hafði aldrei verið notað á legg hér á Íslandi og Matthías yrði ekki fyrstur! Repairkittið fannst ekki, pöntunin hafði aldrei skilað sér, svo aðeins eitt í boði, nýr leggur. Um kl. 14 var Matthías kominn með nýjan legg. Innan við sólarhring eftir að gatið uppgötvaðist þetta kalla ég þjónustu!
Matthías sjálfur bar sig ákaflega mannalega, hlýddi í einu og öllu, enda vanur maður á ferð (8 eða 9 leggur). Það var ekki fyrr en hann var að rúlla inn á svæfinguna að mamman sá tárin fara að trilla niður kinnarnar á Matthíasi. Litli snúllinn minn! Þegar búið var að gefa svæfingarlyfin, þá var prinsinn næstum því útsleginn, en náði þó að segja Mamma! HJÁLP!.. Mömmunni langaði auðvitað mest að stinga af með strákinn sinn, skynsemin sagði þessari mömmu þó að unginn þyrfti að fá nýjan legg, svo ekki gæti hún hlaupið langt áður en hún þyrfti að snúa aftur. Allt gekk vel. Á vöknun, vaknar Matthías nokkuð hress, pirrar sig mest yfir því að hann sé ekki í sínum fötum, en honum lofað að um leið og hann sé kominn upp á deild, þá fari hann í sín föt og svo var það. Matthías kominn heim fyrir fjögur, eitur hress, löngum vinnudegi lokið og næringin rann ljúflega í gegnum nýjan legg í nótt.
Hef uppgötvað mátt bloggsins til að muna hluti (já, já, alltaf doldið sein), en sjálf er ég eins og gullfiskur og man ekkert stundinni lengur og ákaflega fróðlegt fyrir svona gullfisk að geta flett upp ýmsum viðburðum sem gerast svona í lífinu!
Kveðja og knús, Áslaug gullfiskur
Um bloggið
Aslaug
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- sax
- metal
- thoragudmanns
- sibbulina
- ragnaremil
- fjolan
- benjonikla
- siggav
- ingvarvalgeirs
- peturorn
- nesirokk
- saxi
- ktomm
- gudnim
- jakobsmagg
- ivg
- swiss
- millarnir
- fjola
- hjolaferd
- smarijokull
- kristmundsdottir
- joningvar
- hogmogskhihollandi
- judas
- hallurg
- bless
- josi
- hofi
- gunnarfreyr
- ingo
- olafurfa
- saethorhelgi
- steinibriem
- charliekart
- gunnarpalsson
- gossipp
- handtoskuserian
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vá... alltaf eitthvað í gangi hjá frænda Matthíasi en ánægjulegt að allt hefur gengið vel. En eitthvað var ég að lesa fyrstu línurnar vitlaust þegar ég hélt að frændi væri að fara í legskiptinu.
kv.
ARnar
Arnar (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 14:08
GAAAAARG úr hlátri, Arnar minn! Já ekki var það legskipting
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 7.10.2008 kl. 14:36
Elsku kallinn, "mamma hjálp"... ég hefði hlaupið grátandi út en ótrúlega dugleg sem þið eruð öll.
Bestu kveðjur frá okkur í Lómasölunum.
Bryndís
Bryndís (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 23:16
Ég skal nú viðurkenna það Bryndís mín að mamman hefði alveg getað farið að skæla.. vont en það venst! Knús!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 9.10.2008 kl. 10:18
Las legskiptingu út úr þessu líka :o) Gott að þetta gekk eins og í sögu með LEGG-skiptin.
Kveðjur frá Hollandinu,
Hjalti, Maja og Sóley Kristín
hgret (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 13:51
Hahahha smitaðist af lesblinunni:) legskipting:);)
Kvitt kvitt og vona að allt gangi vel
Sigurbjörg Guðleif, 9.10.2008 kl. 17:35
Vinir mínir, við ættum kannski að kíkja saman yfir bók sem ég á sem heitir "Gagn og Gaman" knús!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 11.10.2008 kl. 10:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.