Fiðluferð

“Mamma, það er alveg jafn gott að læra á fiðlu eins og að vera í Gerplu (fimleikum), er það ekki?”  Og  mömmunni nísti inn að hjartarótum og svaraði “já-há, það er sko alveg eins gott”!  Fórum saman og horfðum á fiðluhóptíma, Matthías æðislega rogginn með sig sat og horfði á hina leika ýmsar kúnstir.   Hann var margoft spurður “hvað ert þú gamall?” Af það því stubbur er svo lítill eftir aldri þá hefur  fólk líklegast gert ráð fyrir að mamman hafi logið til um kennitöluna til að koma honum í tónlistarnám.  Hann er að verða 4 ára, en í stærð er hann eins rúmlega 2 ára.  Hef svo sem áður sagt að þó ekkert annað væri, þá hefur hann nú ekki alveg genin með sér, maður myndi alls ekki segja að pabbinn væri tröllvaxinn og mamman er löngu hætt að bíða eftir boðunarbréfinu frá módelsamtökunum.

Allavegana fyrstu tvo einkatímana á Matthías ekki að mæta, bara ég og pabbinn .  Ef við erum fljót að læra, þá fyrst fær Matthías að koma.  Okkur fannst þetta frekar fyndið,  Sumir fara á dansnámskeið, en við erum að fara að læra á fiðlu saman.  Vorum að spá í að hittast í strætó á leið í fiðlutíma, eins og í gamla daga, jafnvel hringja í mömmu og bjóða henni  með í fyrsta tímann.

En Matthías minn er svaka spenntur og  heldur því reyndar fram að hann kunni núna á fiðlu.  Honum  finnst hann svo stór (þó ekki sé hann hár) og kom með þá snilldarhugmynd að skilja bílinn eftir og taka strætó heim úr fyrstu ferðinni í tónlistarskólann.  Já, það hefði sko verið fullkominn dagur, fiðla og strætóferð!

 

Kveðja, Áslaug fiðla 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tónlistarnám er alveg tilvalið fyrir strákana okkar með legginn sinn en held bara að fótbolti kæmi alveg til greina næsta sumar ef þeir væru settir í hokkíbrynju án herðapúðanna. Þær eru léttar og liprar en hylja leggsvæðið. Það er svo gaman á hliðarlínunni! 

Talaði við Róbert í gær. Dælurnar eru á leið til landsins og settin, bakpoki, standur og klemma til að hengja dæluna á standinn fara í pöntun þessa dagana.

Kveðjur

Sigga  

Sigríður Valdimarsdóttir (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 10:13

2 identicon

Já rómantískt, það fara sko ekki allir í dans, einu sinni vildi ég fara á dansnámskeið en Jóni fannst miklu meira spennandi að fara á þýskunámskeið! Sem kom sér að vísu vel í Bad Orb ;)

Álfheiður (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 15:37

3 Smámynd: Sigurbjörg Guðleif

Hæ elskan. Fenguð þið ekk örugglega boðskortið???? Ég er svo stressuð á þessu því að ég veit um tvo sem ekki hafa fengið:)

Góða helgi og knús

Sibba

Sigurbjörg Guðleif, 19.9.2008 kl. 16:06

4 Smámynd: Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Já Sigga mín, pælingin með hokkíbrynjurnar er frekar fyndin! En ætli þeir verði ekki að bíða þangað til að brunnur verður valkostur fyrir þá ?  Frábært hvað þetta gengur hratt og mun auðvelda ansi margt, en er búið að tala við blöndun um nýjar pokastærðir?  Verum í bandi! Knús!

Já, Álfheiður mín, par saman á þýskunámskeið það er mjög sætt og gagnlegt.. og gagnast kannski á fleiri stöðum en þýskumælandi löndum ha,ha!  Og takk fyrir síðast, þetta var mikið stuð, knús!

Já, Sibba mín og takk fyrir boðið, við mætum galvösk og hlökkum til!  Ekkert stress þetta reddast allt á endanum.  Knús! 

Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 20.9.2008 kl. 11:51

5 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Margur er knár þó hann sé smár (segir sá sem er bara 170cm).Gangi ykkur vel í því sem þið eruð að fást við.

Guðjón H Finnbogason, 21.9.2008 kl. 22:24

6 identicon

Hvernig var svo í fiðlutímanum ? 

Ein forvitin fiðlumamma

Bryndís (IP-tala skráð) 21.9.2008 kl. 22:30

7 identicon

Iss... það er miklu 'kúlara' að læra á hljóðfæri. Íþróttir smíþróttir

Þóra Marteins (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 11:16

8 Smámynd: Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Sammála Guðjón minn og takk fyrir

Já Bryndís mín, merkilega að fíla mig vel, spilandi á tvo strengi E og A og finnast ég svakalega klár! 

Gæti ekki verið meira sammála Þóra mín, en þessar "íþróttir" þykja víst eitthvað voðalega "fínt" fyrirbæri! 

Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 24.9.2008 kl. 15:01

9 Smámynd: Fjóla Æ.

Sendi bara knús á þig dúlla. Ég man enn eftir því þegar frumburði mínum datt í hug að fiðla væri málið.

Fjóla Æ., 27.9.2008 kl. 21:28

10 Smámynd: Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Sömuleiðis, stórt knús á þig Fjóla mín.. fæ fiðlusöguna einhvern daginn!

Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 1.10.2008 kl. 19:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Aslaug

Höfundur

Áslaug Helga Hálfdánardóttir
Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Tónlistarspilari

1.Happy family - Áslaug Helga
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 1293

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband