16.9.2008 | 10:36
Lokk og lól
Fyrsta lúðrasveitarferðin afstaðin og komin heim í kotið! Þetta var hin skemmtilegasta ferð með skemmtilegu fólki. Ferðin hófst á skemmtilegri klukkutíma seinkun, þegar allir voru ný-sestir inn í vélina sökum þoku í Frankfurt, það var ákaflega hressandi snemma á fimmtudagsmorgni. Bad Orb þýski smábærinn sem við höfðum aðsetur í var ákaflega lítill og sætur og sá ég aldrei meira en nokkurra kilómetra radius af bænum sökum mikillar dagskrár. Á morgnana var vaknað við lúðrasveitartóna, helst svona þrjár sveitir að spila í einu, og á kvöldin sofnað út frá lúðratónum. Eins gott að ég hafði bara gaman að, nema sveitinni sem var skipuð bassatrommu og piccaloflautum þvílíkur viðbjóður! Íslendingunum var fagnað eins og rokkstjörnum í heimi lúðrasveitanna og stemningin var eins og á útihátíð. Hafði sér í lagi gaman af að útlendingarnir voru ekki alveg að kaupa það að Garden party (Mezzoforte) væri íslensk tónsmíð.. þeir þekktu lagið og það var sko ekki íslenskt! Alltaf lærir maður eitthvað nýtt en líklegast voru furðulegustu umræðurnar sem ég lenti í um klarinettublöð (blöð sem notuð eru til að blása í tækið), ýmsa tækni, tegundir og aðferðir tengdar þessum litla hlut! Ég hafði á orði að ég hefði bæði all oft farið í kórferðir, sem og verið í rokkhljómsveit, en skemmtanaúthald Svansara (lúðrasveitarmeðlima) sló þessu öllu út! .. segið svo að lúðrasveitir séu ekki rokk! ..eða þá að ég sé orðin svona gömul!
Að öðru, varð ákaflega kát eftir símtal sem ég fékk, sem innihélt þær upplýsingar að Matthías Davíð hefði fengið pláss í Tónlistarskólanum í Kópavogi að læra á fiðlu. Gleðin var mikil af því hann má ekki vera í neinu svona íþróttatengdu og finnst alveg ferlega leiðinlegt að systkinin fara á sundnámskeið, íþróttaskóla, jafnvel ballet og núna síðast í fimleika, en hann fær aldrei neitt svona. Ég var því himinlifandi að litli stubburinn minn fengi loksins eitthvað sem væri hans. Mesta tjallensið er þó að mamman þarf líka að læra á fiðlu og við vera saman í þessu og æfa okkur!
Veit að margir eru forvitnir um hvernig stráksi minn hefur það, þar sem ég hef ekki mikið deilt upplýsingum undanfarið. En 7-9-13, þá hefur hann ekki leigt herbergi á Hringbrautinni síðan í janúar og ekki orðið veikur síðan í febrúar. Þetta er að sjálfsögðu met miðað við mánaðafjölda. En nú er komið haust með öllu sínu kvefi og flensum, svo mín ætlar ekki að vera of kokhraust til að storka ekki örlögunum (því hann bregst auðvitað ótrúlega furðulega við slíku áreiti). Að öðru leiti er hann eins, flottur og klár, en fær sína næringu í æð, núna annan hvern dag, sem er gígantísk framför frá daglegri notkun! Leyndarmálið er þó alltaf það sama, engin veit neitt, ætlum að sjá veturinn keyrast í gang og stefnum svo á Boston til áframhaldandi leytar!
Jæja, pæja eða pey(j)i, knús í krús og verum dús
Kveðja, Áslaug
Um bloggið
Aslaug
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- sax
- metal
- thoragudmanns
- sibbulina
- ragnaremil
- fjolan
- benjonikla
- siggav
- ingvarvalgeirs
- peturorn
- nesirokk
- saxi
- ktomm
- gudnim
- jakobsmagg
- ivg
- swiss
- millarnir
- fjola
- hjolaferd
- smarijokull
- kristmundsdottir
- joningvar
- hogmogskhihollandi
- judas
- hallurg
- bless
- josi
- hofi
- gunnarfreyr
- ingo
- olafurfa
- saethorhelgi
- steinibriem
- charliekart
- gunnarpalsson
- gossipp
- handtoskuserian
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 1293
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ, vinkona!
Frábært að hann hafi komist inn í tónlistarskólann. Það verður gaman hjá ykkur með fiðluna og þú verður fljót að ná þessu ef ég þekki þig rétt. Það er líka gaman að heyra hvað honum gengur vel og er ekki veikur. Endilega láttu mig vita þegar þið farið til Boston, aldrei að vita nema að ég skelli mér þangað til að hitta ykkur. Hafið það sem allra best og knúsaðu alla frá mér
Kær kveðja Þóra :0)
Þóra S. Guðmannsdóttir (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 15:39
Já Þóra mín þetta verður æsispennandi með fiðluna, enda ég þessi yfirvegaða og þolinmóða týpa - NOT Boston verður þó aldrei fyrr en eftir ár eða tvö, því allt svona tekur svaka tíma í framkvæmd, sem er þó ekki endilega slæmt, því tíminn vinnur líka með vísindunum og fáum þá kannski eitthvað meira út úr því að fara! ...En þú ert nú hvort sem er ekkert á leiðinni heim strax, svo þú kíkir hvenær sem verður, nema að ég verði búin að kíkja á þig í Atlanda.. maður veit nefnilega aldrei í hvaða fjöru maður rekur (það er samt engin fjara í Atlanda, er það?) Knús!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 17.9.2008 kl. 09:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.