Meira kaffi!

Og nú heldurðu að ég sé að ljúga!  Föstudagur, stoppaði bílinn, já, já, já með kaffið og er að tala í símann, hætti að tala í símann og samhæfingin eitthvað biluð, slekk á símanum með annarri og sný hinni á sama tíma og kaffið yfir löppina á mér.. og sætið ..já og út um allt…ái mjög vont og ég veit, hálfviti!  Sumir læra aldrei af reynslunni!

Sunnudagur og ég er að gera klárt til að aftengja Matthías, dreg saltvatn upp í sprautu og dreg nálina úr saltvatninu og sprautan snýst í hendinni á mér, tekur smá snúning og lendir “Ái” beint í löppinni á mér!  Mikið skelfing var þetta nú vont og risa marblettur!  En hvers konar illaháttur er þetta.

Virðist sem mér takist að klúðra einföldustu hlutum eins og að drekka kaffi þessa dagana!

Frúin er á faraldsfæti á næstunni og ætlar að fara í fyrstu lúðrasveitarferðina á ævinni.  Held ég sleppi því nú samt að spila með enda kann ég ekki á svona lúður, svo það yrði nú bara enn ein skelfingin.  Hyggst hins vegar sitja og drekka rauðvín og klappa fyrir hinum.. Gott plan!  En hvers vegna ætli frúin sé á þessu flandri?  Jú, hann Matti er að taka við sem stjórnandi í lúðrasveitinni Svan og kerlingin verður auðvitað að sýna samstöðu og heimtar að fara með í frí til útlanda… henni finnst það nefnilega svo skemmtilegt, heimsækja þýskaland, þó ekki geti hún drukkið bjór, borðað bratwurst (hvernig sem það er skrifað) eða snitzel!  Þetta verður ákaflega áhugavert fyrir kellu!

Kveðja og knús, á fyrsta degi nýrrar viku.. Óheillakrákan ég! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingvar Bragason

Það er helling að gera í lúðrasveitaferð annað en að spila á hljóðfæri. Ætli við útnefnum þig ekki bara sem fánabera...kannski er bara vissara að hafa þig í rauðvíninu...sjáum til...

Jón Ingvar Bragason, 7.9.2008 kl. 14:05

2 Smámynd: Þráinn Árni Baldvinsson

Til Þýskalands í luðrasveitarferð?

ja, hérna hér, á ýmsu átti ég von en ekki þessu...

Þráinn Árni Baldvinsson, 7.9.2008 kl. 21:35

3 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

7_5_137

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 7.9.2008 kl. 22:20

4 Smámynd: Fjóla Æ.

Mig langar til að benda þér á að prufa að hætta að drekka kaffi í bílnum. Óvæntum kaffislysum gæti fækkað töluvert við það.

Góða skemmtun í lúðrasveitarferðinni og njóttu rauðvínsins í botn.

Fjóla Æ., 8.9.2008 kl. 10:22

5 Smámynd: Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Já Jón Ingvar, mér myndi að öllum líkindum takast að rota einhver með fánastönginni miðað við gengi síðustu daga, svo ætli það sé ekki vissara að hafa mig sitjandi!  Hlakka til að sjá þig!

Já Þrási minn ólíkindatólið ég ætla í lúðrasveitarferð og ef við förum heilan hring með þetta, þá hlítur það að ná rokkstiginu einhverntíman.. eða er haggi?

Knús Fjóla mín

Já, Fjóla mín Ægis, þakka ábendinguna, sem er að öllum líkindum mjög þörf, gæti gagnast til minnkandi slysatíðni á sjálfri mér og takk, takk mun drekka eitt glas fyrir þig, knús!

Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 8.9.2008 kl. 14:52

6 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Njóttu vel.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 14.9.2008 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Aslaug

Höfundur

Áslaug Helga Hálfdánardóttir
Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Tónlistarspilari

1.Happy family - Áslaug Helga
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 1293

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband