6.3.2008 | 09:37
Hvað er svo að frétta?
Nú ég fór í leikhús, það var skemmtilegt, sá Vígaguðinn í Þjóðleikhúsinu á laugardagskvöld. Hóf reyndar kveldið á pasta áti á Caruso, svo það gat varla klikkað! Fékk mér Carbonara, aftur, já, já, alveg eins og rúmri viku fyrr, en það var á öðrum stað. Enda var það alls ekki eins! Já, aftur að leikhúsferðinni. Þetta var ótrúlega fyndið og skemmtilegt leikrit með auðvitað pínu drama undiröldu. Leikararnir: öll frábær! Mæli með þessu ef þú ert í stuði til að hlæja!
Á sunnudag var rokkarakaffi í úthverfi. Nokkrir rokkarar framtíðarinnar léku sér saman. Jón Geir og Nanna komu með Úlfhildi og Þrási metalbolti með Elísabetu. Svo þegar stóðið mitt bætist við, þá slagar nú upp í hálfa leikskóladeild. Allir léku sér fallega saman. Skrítið hvað lífið breytist, nú hittumst við ekki á Gauknum og drekkum bjór, nei nú hittumst við í kaffi, nokkrir úthverfaplebbar, með börnin og bleyjurnar.
Matthías minn svona líka flottur þessa dagana. Ég og doktorinn djókuðum aðeins með að blóðprufunum hefði líklegast verið skipt út og væru frá einhverju öðru barni, svo flottar voru þær. …Furðulegur djókur það en svona svartan húmor fær maður af þessu basli!
Þetta er svona það helsta, nema auðvitað ofurdugleg að mæta í ræktina og ætli kílóin fjúki ekki með síðasta vetrarrokinu og mín orðin svona líka spengileg í vor! Hm, kannski betra að vera ekki of kokhraustur, sjáum hvað setur. – Tja, það versnar allavegana ekki!
Framundan er árshátíð starfsmanna Kópavogsbæjar á laugardagskvöldið (vá, súrt og allt of langt nafn). Klikk gaman í fyrra og verður vonandi ekki síðra þetta árið. Þetta er risa, risa árshátíð og haldin í Fífunni. Hlakka til!
Kveð í bili, knús, Áslaug
Um bloggið
Aslaug
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
sax
-
metal
-
thoragudmanns
-
sibbulina
-
ragnaremil
-
fjolan
-
benjonikla
-
siggav
-
ingvarvalgeirs
-
peturorn
-
nesirokk
-
saxi
-
ktomm
-
gudnim
-
jakobsmagg
-
ivg
-
swiss
-
millarnir
-
fjola
-
hjolaferd
-
smarijokull
-
kristmundsdottir
-
joningvar
-
hogmogskhihollandi
-
judas
-
hallurg
-
bless
-
josi
-
hofi
-
gunnarfreyr
-
ingo
-
olafurfa
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
charliekart
-
gunnarpalsson
-
gossipp
-
handtoskuserian
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hei.... ég verð þar líka :D
Þóra Marteins (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 10:42
kúl, þá eigum við deit, en ég dansa ekki!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 6.3.2008 kl. 16:03
Jamm það var ótrúlega gaman í fyrra, getur ekki klikkað í ár, þú verður í sama góða félagsskapnum hehe...
Magga B. Sig (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 19:51
Hlakka til deitsins og lofa að draga þig ekki út á dansgólfið
Þóra Marteins (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 21:25
Já, Magga mín ekki leiðinlegur félagsskapur þar á ferð! Sum sé Þóra mín, þú finnur mig hjá Skólahljómsveitinni! (..eða á barnum
). Verður mikið stuð!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 7.3.2008 kl. 07:34
Hæ - Áslaug og gaman að frétta af þér, fæ enn gæsahúð og tár í augun þegar ég hugsa um þig að syngja á skólaslitum en ég er nú lika væluskjóða. Hvað varð af öllu þessu frábæra fólki? er það endurfætt í bloggheimum eða hvað? eru flóttamannabúðir einhversstaðar þar sem allt fyrrverandi starfsfólk sm býr í tjöldum? heyrumst stína
kristin einarsd (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 09:41
Þóra, ég held þú verðir fundvísari á barnum
(Fyrst Áslaug neitar að dansa þá verður hún að gera eitthvað annað sér til yndisauka)
Góða skemmtun á árshátíðinni.
Fjóla Æ., 7.3.2008 kl. 15:45
Hafði líka hugsað mér að leita fyrst þar :-p
Þóra Marteins (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 16:53
Stína mín, sjaldnast held ég að þú flokkist sem væluskjóða, u.þ.b. hressasta kona Íslands með risastórt hjarta. 6 bloggvinir úr Smsk. eru á listanum, ég, Þrási og Fjóla farin að gera annað og hef heyrt að þú hugsir þér til hreyfings. Við erum á víð og dreyf en væri sniðugt að hópa okkur saman í tjöld.. og jafnvel undir stjórn fararstýrunnar (þín)..
Hvaða, hvaða, Fjóla og Þóra? Ég líklegast skaut sjálfa mig í löppina með þessu kommenti um barinn. Hins vegar skipti ég stundum um skoðun og mun íhuga að taka kannski 45 snúninga, 2 skref til hægri og ef ég er í svaka gír, eitt til vinstri.. nú annars verð ég bara á barnum, þú finnur mig þar, Þjóra mín
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 8.3.2008 kl. 09:05
Hæ og takk fyrir síðast. Gaman að sjá þig sæta þó það hafi hvorki verið á barnum né á dansgólfinu. Hlakka til næsta hittings og vona að hann verði lengri en 5 mín :D
Þóra Marteins (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 12:12
Sömuleiðis takk for sidst, stuð og stemmari og stefnum á umsamið deit mín kæra!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 10.3.2008 kl. 19:00
Hvenær er næsti rokkskóla hittingur?
Þráinn Árni Baldvinsson, 17.3.2008 kl. 07:07
Bara sem fyrst Þrási minn og þú mætir með Jacksoninn og látum hann ganga hringinn og leyfum börnunum að prófa
, var það ekki annars hann sem gataði á mér eyrað á Ísafirði hérna um árið?
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 18.3.2008 kl. 12:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.